Astronotus 
                  ocellatus
                Astronotus ocellatus 
                  eða Óskar 
                  eins og hann 
                  er kallaður 
                  er  Síkliða 
                  sem kemur frá 
                  Suður-Ameríku, Hann 
                  verður um 30 cm og hentar því eingöngu
                  í stærri búr og þá 
                  með fiskum 
                  í svipaðri stærð
                
                Hann er 
                  forvitinn og 
                  hænist fljótt 
                  að þeim sem 
                  gefa honum 
                  mat og er þetta 
                  einn af 
                  þeim fiskum 
                  sem hafa mikinn karakter 
                
                .JPG)
.JPG)
                  brons og rauðir 
                
                  albino/lutino 
                

                
 
                
                nokkur 
                  litaafbrigði hafa verið ræktuð td. brons og  
                  rauður en hér á myndinni 
                  er albino (sem 
                  reyndar kallast lutino vegna þess 
                  að í honum 
                  er að finna 
                  liti )
                
                  þessi er með sár á búknum eftir 
                  áflog við aðrar síkliður, þótt 
                  Óskar verði stór þá er hann rólegur 
                  við hlið margra annara amerískra síkliða 
                
                
                  Óskarinn er með virðulegri fiskum í búrum 
                
                .JPG)
                .JPG)
                
 
                
                Ef áhugi 
                  er á því 
                  að rækta 
                  Óskar þá er 
                  best að láta 
                  nokkra fiska saman 
                  og bíða 
                  þar til 
                  einhverjir parast. 
                  Það er erfitt að 
                  kyngreina þá 
                  og einnig 
                  er betra 
                  að þeir hæfustu 
                  parist því 
                  í hrygningar undirbúningnum 
                  reynir mikið 
                  á báða fiskana. 
                  Fiskarnir þurfa 
                  gott pláss og einhverjir felustaðir verða að vera ef 
                  annar fiskurinn 
                  (oftast hrygnan) er ekki tilbúinn 
                  til hrygningar. 
                  Til að koma 
                  þeim til 
                  er best að fóðra 
                  þá vel.
                  Td rækjur, kramdir sníglar, fiskar og góður fiskamatur 
                  
                
 
                
                Hrognin eru 
                  oft á bilinu 
                  200-500 og er oftast hrygnt ofan 
                  á stein en stundum 
                  grafa þau sig 
                  niður undir 
                  sandin niður á 
                  botn og 
                  hrygna þar. 
                  Nýlögð egg eru hvít á 
                  lit og virðast 
                  vera ónýt 
                  með fungus 
                
 
                
                Augun farin 
                  að sjást 
                  í hrognunum og nokkur egg með fungus. Fungus getur hæglega breiðst yfir öll eggin 
                  þannig að 
                  ekki er verra 
                  að setja 
                  funguslyf í vatnið 
                  til öryggis 
                
                
 
                
                Hér eru 
                  seiðin að vera búin með kviðpokann en úr honum fá 
                  þau næringu 
                  fyrstu dagana og 
                  þá er komið 
                  að því að 
                  fóðra þau 
                  og er Artemía 
                  í uppáhaldi. 
                
                
 
                  
                  seiðalitur 
                Óhætt er 
                  að mæla 
                  með þessum 
                  fiskum en hafa ber í 
                  huga að 
                  þeir verða 
                  stórir og þurfa 
                  því stórt 
                  búr og ekki 
                  síst öflugan 
                  hreinsibúnað