Náttúrugripasafnið Milano Italíu

Margt er hægt að skoða í Milano og eitt af því er náttúrugripasafnið, sem er hið glæsilegasta á nokkrum hæðum. Mér fannst gaman að sjá hvað mikið var lagt upp úr smáatriðum í sýningarbásunum og er hægt að skoða suma básana aftur og aftur og alltaf finna einhver kvikindi sem maður sá ekki áður



Framhliðin á safninu



fíll í baði með afkvæmið



nashyrningur í blautu grasi



antilópa í skóginum



skjaldbökur að svala þorstanum



beinagrindur af horfnum risum



skemmtilegar uppsetningar á skordýrum



skordýrabúrin voru mörg frá ýmsum svæðum



kolkrabbi



humrar,krabbar



kuðungakrabbar og fleiri



sumir krabbar voru stærri en aðrir



sporðdrekar í úrvali



köngulær í ýmsum útgáfum



fiðrildi voru þarna í öllum stærðum og gerðum



bjöllur og allkyns pöddur



ég mátti til með að setja þessa vespumynd með þvi stærðin á þeim var hrikaleg

 

safnið er stórt og úrvalið mikið og var mikið lagt upp úr umhverfi í sýningarbásum og td.voru skemmtileg búr þar sem vatnalíf var sýnt allt frá neonfiskum upp í vatna höfrunga og voru þá dýrin í einhvernskonar hlaupmassa sem sást vel í gegn um en myndir sem ég tók af því komu ekki vel út.


Sem betur fer þurfti ég ekki að fara á salernið því það er svona porstulíns standur sem maður stendur á boginn í hnjánum og reynir að hitta í gatið
( áhugasamir geta fengið senda mynd )
sendu fyrirspurn á gudmundur@fiskabur.is

 

   
Copyright © 2004 TkO-grafik.is